Fréttir


23.11.2012

Kísilkarbíðverksmiðja á Bakka við Húsavík

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um tillögu að matsáætlun

Skipulagsstofnun hefur fallist á tillögu framkvæmdaraðila með athugasemdum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um tillögu Verkís hf. f.h. Saint Gobain að matsáætlun fyrir kísilkarbíðverksmiðju með allt að 25.000 tonna ársframleiðslu á Bakka við Húsavík, Norðurþingi. Fallist er á tillöguna með athugasemdum. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má sjá í heild sinni hér.