Fréttir


6.12.2012

Efnistaka á Kollstaðamóum, Fljótsdalshéraði

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun telur að verkefnið skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að stækkun efnistökusvæðis á Kollstaðamóum í landi Egilsstaða 2/Kollstaða á Fljótsdalshéraði, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugvegi 166, 105 Reykjavík.  Hana er einnig að finna hér.  Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 12. janúar 2013.