Fréttir


17.12.2012

Nýjar flæði-og kerbrotagryfjur á hafnarsvæði við Grundartanga

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að förgun skilgreinds úrgangs í nýjar flæði- og kerbrotagryfjur á hafnarsvæði við Grundartanga skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 18. janúar 2013.