Fréttir


19.12.2013

Heiðarár- og Þverárvirkjun í Bláskógabyggð

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framkvæmdirnar skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að Heiðarár- og Þverárvirkjun í Bláskógabyggð skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.  Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 21. janúar 2014.