Fréttir


20.12.2013

Urðunarstaður í Laugardal við Húsavík

Mat á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að urðunarstaður í Laugardal við Húsavík skuli ekki háður mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 21. janúar 2014.