Fréttir


20.12.2013

Færsla óss Lagarfljóts og Jöklu í Héraðsflóa

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að færsla á ósi Lagarfljóts og Jöklu í Héraðsflóa, Fljótsdalshéraði skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166 ,105 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 21. janúar 2014.