Fréttir


15.4.2020

Ný flæðigryfja á hafnarsvæði Grundartanga

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Framkvæmd ekki háð mati

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að ný flæðigryfja á hafnarsvæði Grundartanga í Hvalfjarðarsveit skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 18. maí 2020.