Fréttir


23.6.2020

Skógrækt í landi Hallfríðarstaða, Hörgársveit

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fyrirhuguð skógrækt í landi Hallfríðarstaða, Hörgársveit, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér. 

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 27. júlí 2020.