Fréttir


  • Grindavík

3.12.2020

Staðfesting á Aðalskipulagi Grindavíkur 2018-2032

Skipulagsstofnun staðfesti, 3. desember 2020, nýtt aðalskipulag fyrir Grindavíkurbæ, þ.e. Aðalskipulag Grindavíkur 2018-2032 og skrá yfir vegi í náttúru Íslands, sem samþykkt var í bæjarstjórn 24. nóvember 2020. Við gildistöku aðalskipulagsins fellur úr gildi Aðalskipulag Grindavíkur 2010-2030, ásamt síðari breytingum.

Málsmeðferð var samkvæmt 30. - 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.