Fréttir


20.12.2017

Staðfesting á Aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032

Skipulagsstofnun staðfesti 19. desember 2017 nýtt aðalskipulag fyrir Hrunamannahrepp sem samþykkt var í sveitarstjórn 24. nóvember 2017.

Málsmeðferð var samkvæmt 30.-32. gr. skipulagslaga. Við gildistöku Aðalskipulags Hrunamannahrepps 2016-2032 fellur úr gildi Aðalskipulag Hrunamannahrepps 2003-2015, staðfest 20. desember 2005.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.