Fréttir


6.2.2018

Staðfesting á aðalskipulagi Kópavogs vegna breyttar landnotkunar á Nónhæð

Skipulagsstofnun staðfesti þann 2. febrúar 2018 breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. desember 2017.

Í breytingunni felst að 2,7 ha svæði fyrir samfélagsþjónustu og opið svæði til sérstakra nota verður breytt í íbúðarsvæði þar sem gert er ráð fyrir 140 íbúðum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.