Fréttir


4.12.2017

Staðfesting á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna stækkun íbúðarbyggðar við Hvolstún

Skipulagsstofnun staðfesti 30. nóvember 2017 breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024 sem samþykkt var í sveitarstjórn 10. apríl 2017.

Í breytingunni felst að hluti af opnu svæði á milli Nýbýlavegar og Hvolstúns á Hvolsvelli (OP-123) er breytt í íbúðarbyggð (ÍB-111) sem stækkar um 0,4 ha. Legu reiðleiðar á svæðinu er einnig breytt.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.