Fréttir


3.6.2020

Staðfesting á Aðalskipulagi Súðavíkurhrepps 2018-2030

Skipulagsstofnun staðfesti, 2. júní 2020, Aðalskipulag Súðavíkurhrepps 2018-2030 og skrá yfir vegi í náttúru Íslands, sem samþykkt var í sveitarstjórn 17. apríl 2020. Við gildistöku hins nýja aðalskipulags fellur úr gildi Aðalskipulag Súðavíkurhrepps 1999-2018 ásamt síðari breytingum.

Málsmeðferð var samkvæmt 30. - 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.