Fréttir


22.12.2017

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna landnotkunarbreytinga í Árnesi

Skipulagsstofnun staðfesti þann 21. desember 2017, breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016, sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. nóvember 2017.

Í breytingunni felst að íbúðarsvæði við enda Bugðugerðis stækkar, þjónustusvæði S4 (leikskólalóð) við Skólabraut er breytt í íbúðarsvæði, svæði fyrir verslun- og þjónustu (V3) stækkar og opið svæði minnkar sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar hún hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.