Fréttir


  • Hausthúsatorg, Akranesi

25.3.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akraness vegna Hausthúsatorg

 

Skipulagsstofnun staðfesti, 25. mars 2022, breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 sem samþykkt var í bæjarstjórn 8. mars 2022.

Í breytingunni felst að skilgreindur er nýr 1,6 ha landnotkunarreitur (V-15) við Hausthúsatorg fyrir verslun og þjónustu m.a. orkustöð, veitingasölu, bílaþjónustu og upplýsingasvæði. Óbyggt svæði minnkar sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1.mgr. 36. gr. Skipulagslaga nr.123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.