Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akraness vegna tjaldsvæðis við Kalmansvík
Skipulagsstofnun staðfesti, 28. maí 2020 breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 sem samþykkt var í bæjarstjórn 12. maí 2020.
Í breytingunni felst að breyta óbyggðu svæði í Kalmansvík og 1,3 ha af íbúðarbyggð (ÍB-21) í annars vegar 5,3 ha afþreyingar- og ferðamannasvæði (AF-1) fyrir tjaldsvæði og hins vegar 3 ha opið svæði til sérstakra nota, útivistarsvæði.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.