Fréttir


  • Krossaneshagi

4.2.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akureyrar vegna iðnaðarsvæðis í Krossanesi

 

Skipulagsstofnun staðfesti, 30. janúar 2020, breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 15. október 2019.

Í breytingunni felst að landnotkun á hluta athafnasvæðis í Krossaneshaga (AT5) er breytt í iðnaðarsvæði (I8B).

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.