Fréttir


  • Stigakerfi Akureyri

15.1.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akureyrar vegna stígakerfis á Akureyri

Skipulagsstofnun staðfesti 15. janúar 2021 breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 1. desember 2020.

Í breytingunni er sett fram heildstæð stefna um uppbyggingu stígakerfis Akureyrarbæjar með það að markmiði að stuðla að bættum samgöngum fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.