Fréttir


  • Eyrarland

1.2.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna iðnaðarsvæðis að Eyjarlandi

Skipulagsstofnun staðfesti, 1. febrúar 2022, breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 2. desember 2021.

Í breytingunni felst að 3 ha landbúnaðarsvæði, Eyjarland við Eyjaveg, er breytt í iðnaðarsvæði fyrir seiðaeldisstöð (I21).

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.