Fréttir


  • Syðri-Reykir II

26.3.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna vegtengingar við Syðri-Reyki 2

Skipulagsstofnun staðfesti, 11. mars 2020, breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027, sem samþykkt var í sveitarstjórn 23. janúar 2020.

Í breytingunni felst að bætt er inn nýrri vegtengingu af Reykjavegi inn á land Syðri-Reykja 2.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.