Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna breyttrar legu Hringvegar og stækkun Í12
Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna breyttrar legu Hringvegar og stækkun Í12.
Skipulagsstofnun staðfesti, 12. júní 2024 breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. mars 2024.
Í breytingunni felst að þjóðvegur 1 um Borgarnes er færður fjær byggðinni auk þess að íbúðarsvæði Í12 er stækkað og íbúðum fjölgað í 130.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.