Fréttir


  • Mávaklettur, Borgarnes

3.2.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna Mávakletts 10, Borgarnesi

Skipulagsstofnun staðfesti, 2. febrúar 2022, breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. janúar 2022.

Í breytingunni felst að landnotkun á lóð Mávakletts 10, Borgarnesi, er breytt úr opnu svæði í íbúðarbyggð (Í9).

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.