Fréttir


5.8.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna miðsvæðis M3, Borgarbraut 55, Borgarnesi

Skipulagsstofnun staðfesti, 5. ágúst 2022, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022, sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. júlí 2022.

Í breytingunni felst að nýtingarhlutfall á miðsvæði M3, innan lóðar Borgarbrautar 55, hækkar um 0,05, sem þýðir að byggingarmagn eykst um 107 m2 fyrir stiga og lyftuhús.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.