Fréttir


  • Ytri Skeljabrekka, frístundabyggð

26.5.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna Ytri-Skeljabrekku, frístundabyggð F45 og íbúðarsvæði Í7

Skipulagsstofnun staðfesti 26. maí 2021 breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 8. apríl 2021.

Í breytingunni felst að frístundabyggð F45 er stækkuð og gert ráð fyrir 38 lóðum. Jafnframt er afmarkað íbúðarsvæði Í7 fyrir 3 íbúðarhús sem þegar eru byggð. Fyrir liggur „Ofanflóðahættumat fyrir Ytri-Skeljabrekku“, dags. 7. desember 2018 og tekur breytingin mið af því..

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.