Fréttir


  • Geitland

22.5.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Borgarfjarðarhrepps vegna Geitlands, iðnaðar- og vatnsverndarsvæði

Skipulagsstofnun staðfesti, 15. maí 2020, breytingu á Aðalskipulagi Borgarfjarðarhrepps 2004-2016 sem samþykkt var í sveitarstjórn 1. júlí 2019.

Í breytingunni felst að 2,8 ha landbúnaðarsvæði í landi Geitlands er breytt í iðnaðarsvæði BI1 fyrir vatnsátöppunarverksmiðju. Hámarks byggingarmagn er 900 m² á tveimur hæðum. Jafnframt er skilgreint nýtt vatnsverndarsvæði VS6, vegna verksmiðjunnar.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.