Fréttir


  • Hlíð í Hörðudal

4.5.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar vegna frístundabyggðar að Hlíð í Hörðudal

Skipulagsstofnun staðfesti, 4. maí 2020, breytingu á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016 sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. september 2018.

Í breytingunni felst að landbúnaðarsvæði í landi Hlíðar í Hörðudal er breytt í annars vegar 6 ha frístundabyggð og hins vegar 2 ha svæði fyrir verslun og þjónustu.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.