Fréttir


  • Borgarður 1

22.12.2017

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Djúpavogshrepps, Borgargarður 1

Skipulagsstofnun staðfesti þann 20. desember 2017 breytingu á Aðalskipulagi Djúpavogshrepps 2008-2020, sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. nóvember 2017.

Í breytingunni felst að óbyggt svæði og hverfisverndað svæði við Borgargarð 1 (Borgargerði) er stækkað en íbúðarsvæði er minnkað.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar, þegar hún hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.