Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Djúpavogshrepps, Karlsstaðir, ferðaþjónusta
Skipulagsstofnun staðfesti þann 18. apríl 2017 breytingu á Aðalskipulagi Djúpavogshrepps 2008-2020, sem samþykkt var í sveitarstjórn 17. mars 2017.
Í breytingunni felst að verslun og þjónusta er heimiluð í landi Karlsstaða. Gert er ráð fyrir rekstri í ferðaþjónustu með gistingu fyrir allt að 34 gesti, veitingasal og viðburðarými í eldra húsnæði.
Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Auglýsing um staðfestinguna mun birtast í B-deild Stjórnartíðinda innan tíðar og með því öðlast gildi.
Í kjölfarið verður hægt að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar.