Fréttir


  • Borgarland

4.5.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Djúpavogshrepps vegna Borgarlands á Djúpavogi

Skipulagsstofnun staðfesti 29. apríl 2020 breytingu á Aðalskipulagi Djúpavogshrepps 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. mars 2020.

Í breytingunni felst að íbúðasvæðið Borgarland stækkar og ný gata staðsett innan þess. Samhliða breytist afmörkun hverfisverndaðs svæðis.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.