Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Djúpavogshrepps vegna ljósleiðara
Skipulagsstofnun staðfesti, 4. júní 2020, breytingu á Aðalskipulagi Djúpavogshrepps 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. maí 2020.
Í breytingunni felst breytt lega ljósleiðara frá sveitarfélagamörkum í norðri að Djúpavogi.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.