Fréttir


  • Efnistökusvæði Bíldsárskarði

6.10.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar vegna efnistökusvæðis E35 á Bíldsárskarði

 

 

Skipulagsstofnun staðfesti, 5. október 2020, breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030, sem samþykkt var í sveitarstjórn 3. september 2020.

Í breytingunni felst nýtt 30.000 m³ efnistökusvæði í landi Kaupangs á Bíldsárskarði, að hámarki 10.000 m² að stærð, sem nýta á við byggingu Hólasandslínu 3.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.