Fréttir


1.11.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar vegna Leifsstaða, verslun og þjónusta

Skipulagsstofnun staðfesti 1. nóvember 2022 breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 25. ágúst 2022.

Í breytingunni felst að um 9,6 ha af íþróttasvæði ÍÞ2 (golfvöllur) er breytt í svæði fyrir verslun og þjónustu (VÞ4), fyrir hótel og ferðaþjónustu, og 0,5 ha er breytt í frístundabyggð F3b.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.