Fréttir


7.3.2017

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs vegna Ásgeirsstaða

Skipulagsstofnun staðfesti þann 6. mars 2017 breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028, sem samþykkt var í sveitarstjórn 7. desember 2017.

Í breytingunni felst að 1,15 ha landbúnaðarsvæði í landi Ásgeirsstaða er breytt í verslun og þjónustu (V33). Gert er ráð fyrir gistiaðstöðu í 16 litlum húsum, samtals 450 m².

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin öðlast gildi við birtingu auglýsingar um staðfestinguna í B-deild Stjórnartíðinda.

Hægt verður nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar eftir að breytingin hefur öðlast gildi.