Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna fjölgunar íbúða á miðsvæði M-401 á milli Freyjugötu og Sæmundargötu
Skipulagsstofnun staðfesti 4. júní 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 sem samþykkt var í sveitarstjórn 21. febrúar 2024.
Í breytingunni felst að heimilað er á miðsvæði M-401 á Sauðárkróki að fjölga íbúðum um alls 4, eða úr 18 í 22. Hluti þeirra verður í raðhúsum í stað parhúsa eins og áður var heimilt. Byggingarmagn er óbreytt.
Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.