Fréttir


  • Grundahverfi, Garðabæ

2.4.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna skóla í Grundahverfi

Skipulagsstofnun staðfesti 2. apríl 2020 breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 20. febrúar 2020.

Í breytingunni felst að afmarkað er nýtt 1 ha svæði fyrir samfélagsþjónustu, 2.19.S og minnkar opið svæði sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.