Fréttir


  • Asvellir

3.3.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna íbúðarsvæðis ÍB8 á Ásvöllum

Skipulagsstofnun staðfesti, 27. febrúar 2020, breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 13. nóvember 2019.

Í breytingunni felst að 0,7 ha íþróttasvæðisins ÍÞ3 breytist í íbúðarbyggð og sameinast íbúðarsvæði ÍB8.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.