Fréttir


  • Hlíðarbraut

10.11.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðarbæjar vegna íbúðarbyggðar við Hlíðarbraut

Skipulagsstofnun staðfesti, 6. nóvember 2020, breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 16. júlí 2020.

Í breytingunni felst að svæði fyrir samfélagsþjónustu S20 við Suðurgötu og Hlíðarbraut er minnkað og íbúðarbyggð ÍB6 stækkuð fyrir fjórar íbúðarhúsalóðir.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.