Fréttir


20.1.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hornafjarðar

Skipulagsstofnun staðfesti, 17. janúar 2020, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 12. desember 2019.

Í breytingunni felst breyting á skipulagsákvæðum, fyrir landnotkunarreitinn Stekkaklettur S5 samfélagsþjónusta, í þá veru að á reitnum verði heimil föst búseta og uppbygging tengd kvikmyndagerð.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.