Fréttir


5.12.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hornafjarðar vegna Reynivalla II

Skipulagsstofnun staðfesti, 4. desember 2018 breytingu á Aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030, sem samþykkt var í bæjarstjórn, 9. maí 2018.

Í breytingunni felst að 10 ha af landbúnaðarlandi er breytt í verslunar- og þjónustusvæði, VÞ45 í landi Reynivalla II. Fyrirhugað er að byggja hótel fyrir allt að 200 gesti og styrkja þjónustu, svo sem með vöru- og eldsneytissölu.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.