Fréttir


3.8.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Húnaþings vestra vegna Laxárdalsvegar

Skipulagsstofnun staðfesti 2. ágúst 2022 breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. júlí 2022.

Í breytingunni felst að mörkuð er stefna um fjögur ný efnistökusvæði við Laxárdalsveg sem nýta á til lagfæringa á veginum.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.