Fréttir


  • Móar

20.11.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar vegna ferðaþjónustu að Móum

Skipulagsstofnun staðfesti, 11. nóvember 2020, breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 22. september 2020.

Í breytingunni felst að 1,6 ha landbúnaðarsvæðis að Móum er breytt í svæði fyrir verslun og þjónustu vegna ferðaþjónustu.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.