Fréttir


  • Hlíðarhagi, Hveragerði

11.6.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hveragerðis vegna íbúðarbyggðar í Hlíðarhaga

Skipulagsstofnun staðfesti 10. júní 2021 breytingu á Aðalskipulagi Hveragerðis 2017-2029 sem samþykkt var í bæjarstjórn 12. maí 2021.

Í breytingunni felst að á svæði fyrir íbúðarbyggð í Hlíðarhaga (ÍB5) er gert ráð fyrir allt að 25 íb/ha í 1-2 hæða rað- og fjölbýlishúsum í stað 15 íb/ha í rað- og parhúsum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.