Fréttir


13.5.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar vegna Naustahvilftar

Skipulagsstofnun staðfesti, 9. maí 2019, breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 sem samþykkt var í bæjarstjórn 2. maí 2019.

Í breytingunni felst að óbyggðu svæði um Naustahvilft og hlíðina neðan hennar er breytt í 28 ha opið svæði til sérstakra nota fyrir útivist (Ú70).

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.