Fréttir


  • Keflavíkurflugvöllur

3.12.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar vegna tengingar þjónustuvegar við Reykjanesbraut

Skipulagsstofnun staðfesti, 3. desember 2020, breytingu á Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2013-2030 sem samþykkt var í skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar 9. nóvember 2020.

Í breytingunni felst lega nýs þjónustuvegar sem tengja á við Reykjanesbraut á móts við Aðalgötu í Reykjanesbæ.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.