Fréttir


  • Helgafellshverfi, Mosfellsbæ

4.3.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar vegna fjölgun íbúða í Helgafellshverfi, reitur ÍB-302

Skipulagsstofnun staðfesti, 3. mars 2022, breytingu á Aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 26. janúar 2022.

Í breytingunni felst fjölgun íbúða á reit ÍB-302 í Helgafellshverfi, úr 940 í 1150 íbúðir, þéttileiki íbúða verður 21,6 íbúð/ha.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.