Fréttir


27.9.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar vegna frístundabyggða

Skipulagsstofnun staðfesti 25. september 2018 breytingu á Aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030, sem samþykkt var í bæjarstjórn 22. ágúst 2018.

Í breytingunni felst að skipulagsákvæðum í yfirlitstöflu fyrir frístundabyggð er breytt fyrir svæði 507-F, 521-F og 526-F auk þess sem ákvæðum fyrir svæði 533-F er bætt við töfluna. 

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.