Fréttir


16.2.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps vegna Norður-Garðs 3

Skipulagsstofnun staðfesti 16. febrúar 2022 breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. desember 2021.

Í breytingunni felst að um 5 ha landbúnaðarsvæði verður skilgreint sem frístundabyggð F10 og þar er gert ráð fyrir fjórum frístundalóðum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.