Fréttir


27.2.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps vegna Péturshóla

Skipulagsstofnun staðfesti, 25. febrúar 2019, breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028, sem samþykkt var í sveitarstjórn 22. mars 2018

Í breytingunni felst að 4 ha landbúnaðarsvæði á Péturshólum, áður hluti af Völlum, er breytt í verslun og þjónustu.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.