Fréttir


  • Fiskeldi á Kópaskeri

13.3.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Norðurþings vegna fiskeldis á Kópaskeri

Skipulagsstofnun staðfesti, 11. mars 2020, breytingu á Aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 18. febrúar 2020.

Í breytingunni felst að 4,3 ha athafnasvæði A3 er breytt í iðnaðarsvæði I1 fyrir fiskeldisstöð á landi.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.