Fréttir


  • Fornhagi

2.4.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna Fornhaga

Skipulagsstofnun staðfesti 2. apríl 2020 breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024 sem samþykkt var í sveitarstjórn 9. janúar 2020.

Í breytingunni felst að 15 ha landbúnaðarsvæði er breytt í svæði fyrir verslun og þjónustu, þar sem gert er ráð fyrir tjaldsvæði með þjónustuhúsum og allt að 50 gistihúsum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1 mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.